Friday, May 31, 2013

Ljúffengur chiagrautur

Þetta er uppáhaldið mitt í morgunsárið, ég elska þegar ég hef nægan tíma á morgnana til þess að útbúa mér morgunmat. Hundfúlt að fara með tóman maga út í daginn. Þessi grautur eru sérstaklega einfaldur og fljótlegur, svo er hann líka mjög góður. Hér kemur uppskriftin, ég vona að þið prófið og njótið vel. 

Chia grautur 

1 dl haframjöl
1 1/2 dl vatn
1 1/2 dl mjólk
3 msk chia fræ
smá salt

Öllu blandað saman í pott og hitað við mjög vægan hita þar til grauturinn hefur þykknað, hrærið vel í á meðan. Berið grautinn fram með smá agavesírópi og ferskum berjum. Ég var svo heppin að fá þrjár öskjur af dásamlegum Íslenskum jarðaberjum í gær og ég naut þess að borða þau í morgunsárið. Vá, hvað íslensku berin eru miklu betri en þau útlensku. 

Ég vona að þið eigið ljúfan föstudag kæru vinir. Við heyrumst fljótlega!

xxx

Eva Laufey Kjaran

Wednesday, May 29, 2013

Góðir vinir í Kaupmannahöfn

Ég hef sjaldan skemmt mér eins vel og ég gerði í þessari helgarferð með bestu vinum mínum. Almáttugur hvað ég á skemmtilega vini, við nutum þess svo sannarlega að vera saman  í Kaupmannahöfn. Það var svolítið tómlegt að vakna ekki með þeim í morgun en það var líka gott að vakna hjá Hadda mínum. Ríkidæmið  að eiga svona góða vini og það sem ég hlakka til  að hitta þau sem fyrst og rifja upp skemmtilegar minningar úr ferðinni góðu. Ég ætla að deila með ykkur nokkrum myndum af lokadeginum í Köben. 

Agla og Fríða í bröns. 

Gleraugnagengið. 

Dásamlegur bröns, það má segja að við séum búin að borða fyrir árið. 

Fórum í siglingu eins og góðum túristum sæmir. 



Hafmeyjan. 


Úps. 

Og já það var fengið sér eina vöfflu, enda vorum við nú lítið að telja kaloríur í ferðinni. haha.

Mjög sáttar vinkonur að borða vöfflur í Nyhavn. 

Þessi ferð var dásamleg og ég er svo heppin að eiga svona góða og skemmtilega vini. Kaupmannahöfn er líka einstaklega skemmtileg borg, okkur Hadda langar mikið að fara þangað í sumar og vonandi förum við. Virkilega hugguleg borg!

xxx

Eva Laufey Kjaran

Tuesday, May 28, 2013

Torvehallerne

Torvehallerne er stærsti matarmarkaðurinn í Kaupmannahöfn, ég naut þess að labba um og skoða, þefa og smakka ljúffengan mat. Það eru 60 mismunandi staðir í Torvehallerne svo allir ættu að finna sér eitthvað við sitt hæfi. 

Agnes cupcakes - ein krúttlegasta bollakökubúð sem ég hef séð. Kökurnar eru dásamlegar góðar. 





Fengum okkur smurbrauð og skáluðum fyrir Fríðu sem átti afmæli þennan dag. 


Algjört beauty

Mæli með að þið farið í Torvehallerne ef þið eruð á leið til Kaupmannahafnar. Algjört himnaríki fyrir sælkera. 

Nú erum við að pakka niður og leiðin liggur heim í dag, þetta hefur verið stórkostleg ferð og við erum ansi hátt uppi í dag vegna þess að við vorum á svo frábærum tónleikum í gærkvöldi með Beyonce. Almáttugur hvað hún er flott, ég lét inn myndband á Facebook síðu bloggsins. Hér getið þið skoðað það.  

xxx

Eva Laufey Kjaran

Sunday, May 26, 2013

Sumardrykkir á Strikinu

Morgunmatur í íbúðinni áður en haldið var af stað í göngutúr um borgina. 

 Sátum á Norden, borðuðum besta Nachos sem ég hef smakkað og drukkum sumardrykki í sólinni. 





Fjórir vinir afskaplega sáttir með lífið. 

 Agnes cupcakes - svo fallegar og góðar kökur. 

xxx

Eva Laufey Kjaran


Friday, May 24, 2013

Hamingjusamir vinir í Köben

Við komum eldsnemma í morgun til Köben og sólin tók aldeilis á móti okkur. Við byrjuðum á því að koma okkur fyrir í íbúðinni og tókum svo góða leggju. Um hádegisbilið fórum við og fengum okkur smurbrauð og hressandi drykki á Nyhavn. Kaupmannahöfn er mjög heillandi og við höfum verið að labba um og njóta okkar í góða veðrinu.  
Ég tók auðvitað margar myndir í dag og ætla að deila nokkrum með ykkur. 






 Dejligt að vera saman í Köben. 




Nú er Stefán Jóhann búinn að blanda fordrykki og nú liggur leiðin út að borða. 

Ég vona að þið hafið það ljómandi gott og góða helgi.

xxx

Eva Laufey Kjaran


Thursday, May 23, 2013

Ómótstæðilegar Franskar Makrónur.


Franskar makrónur eru ómótstæðilega góðar og algjört augnayndi. Þegar við Haddi fórum til Parísar. ( þetta er önnur færslan í röð sem ég minnist á París, það er bara allt svo ljómandi gott við París)  þá gekk ég framhjá Ladurée "The Parisian tea salons". Það má rekja sögu Ladurée aftur til ársins 1862, makrónur eru þeirra sérgrein og þær eru svo dásamlega góðar að það nær öngvri átt. Mér finnst ótrúlega gaman að baka makrónur (þegar baksturinn gengur upp).  Ég fór á námskeið hjá Salt eldhúsi og mæli svo sannarlega með að þið farið á námskeið hjá henni Auði í makrónubakstri. 

Í dag ætla ég að deila með ykkur uppskrift að makrónum með súkkulaðifyllingu. 

Makrónur gleðja bæði augað og magann. 

Franskar makrónur
ca. 20 - 22 kökur. 
140 g möndlumjöl 
185 flórsykur
4 stk. eggjahvítur
60 g sykur
matarlitur (ég nota gel matarliti frá Wilton) 

Aðferð: 

1. Stillið ofninn á 160°C.  Þeytið eggjahvíturnar lauslega eða þar til fer að freyða, þá er hraðinn aukinn og þeytt þar til mjúkir toppar myndast í eggjahvítuna, bætið sykrinum saman við í þremur skömmtum. Þeytið áfram þar til blandan myndar stífa toppa og er orðin mjúk og glansandi.  Ef þið ætlið að nota matarlit þá bætið þið honum saman við á þessu stigi og blandið varlega saman við stífþeyttu eggjahvíturnar. 

2. Vigtið og sigtið saman flórsykur og möndlumjöl og blandið vel saman. Blandið þurrefnum varlega saman við eggjahvíturnar með sleikju og þess gætt að allt loft fari ekki úr blöndunni, bætið þurrefnum saman við í þremur skömmtum. Þegar að þið hafið blandað þurrefnum saman við þá er komið að aðferð sem kallast "le macronage", veltið/hrærið blöndunni 30 - 50 sinnum eða þangað til blandan myndar óslitinn borða þegar hún er látin leka af sleikjunni og niður í skálina, hún á að halda lögun sinni í um 30 sekúndur. 

3. Setjið blönduna í sprautupoka (ég kaupi mjög fína sprautupoka í IKEA á fínu verði). 

4. Sprautið blöndunni á smjörpappír, búið til litla hringi á stærð við 10 kr. Ég keypti þessar frábæru mottur hjá Salt eldhúsi og mæli með þeim. Hér getið þið keypt mottuna. 

Takið því næst plötuna upp og látið hana falla niður á borðið nokkrum sinnum til að fletja kökurnar aðeins út og losna við loftbólur. Leyfið kökunum að hvílast í ca. 30 mínútur eða þar til þær hafa stífnað svolítið á yfirborðinu. 


5. Setjið kökurnar í 160°C (undir/yfir hiti) heitann ofn og bakið í 15 mínútur á næst eftstu rim. Mjög mikilvægt að fylgjast með bakstrinum vegna þess að ofnar eru mjög mismunandi og það tekur smá tíma að finna út hvaða tími hentar best fyrir kökurnar í ofninum. Þið getið prófað að taka fremstu kökuna í ofninum eftir 15 mínútur og hreyfa við henni, ef hún færist ekki þá er hún ekki tilbúin og þarf lengri tíma. 

Kælið kökurnar og búið til ljúffenga fyllingu, það eru svo margar uppskriftir að kremum sem henta vel á þessar kökur svo það er bara að prófa sig áfram. Ég ætla að deila með ykkur minni eftirlætis fyllingu, súkkulaðifylling með Saltverkssalti. 



Súkkulaðifylling með Saltverkssalti

100 g dökkt súkkulaði 
25 g smjör
5 msk rjómi
Lakkríssalt frá Saltverkssalti á hnífsoddi 

Aðferð:

Skerið smjörið og saxið súkkulaðið, hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið og smjörið. Leyfið þessu að standa í svolitla stund og hrærið svo vel í blöndunni. Bætið saltinu saman við og blandið vel saman. 

Setjið fyllinguna í sprautupoka og geymið í kæli í svolitla stund eða þar til fyllingin hefur stífnað, gætið þess þó að kremið sé ekki of hart því þá getur verið vandasamt að sprauta því á kökurnar. 

Kökurnar eru settar saman tvær og tvær með dásamlegri fyllingu á milli. Gott er að geyma kökurnar í ísskáp 24 - 28 tímum áður en þær eru borðaðar. Munið þó að taka þær út úr ísskápnum vel áður en þið berið þær fram. 

Ég keypti þessa litlu fallegu poka í IKEA og færði vinkonu minni þessar kökur að gjöf þegar hún opnaði myndlistarsýninguna sína hér á Akranesi. Tilvalið að gefa kökurnar sem gjöf! 

Ég vona að þið njótið vel kæru vinir

xxx

Eva Laufey Kjaran